28.10.2010 21:57:32 / Jónsi
Sælir foreldrar og stelpur,
Héðan í frá munum við færa okkur yfir á thorsport.is og vera með bloggið okkar þar. Það eru ýmsar leiðir til að komast þangað á réttan stað í fréttirnar okkar.
Auðveldasta leiðin er sennilega bara með því að smella (mæli með að þið addið svo bara þeirri slóð í favorites):
HÉR
»
28.10.2010 00:15:42 / Jónsi
Sælar dömur mínar,
Á morgun set ég hér inn risafærslu varðandi foreldrafundin sem haldin var í kvöld með helstu upplýsingum um hann. En ég ætla svo sem að byrja á því hér að lýsa yfir verulegum vonbrigðum með mætinguna, einungis 6 foreldrar mættu. Við munum fljótlega boða til annars fundar.
En já það kemur ykkur svo sem lítið við snúllurnar mínar með þennan fund, nú kemur að því sem þið verðið að lesa
Á föstudag er ÆFING hjá ÖLLUM kl.16:45 í Boganum. Við förum stuttlega yfir aftur að skýla bolta undir pressu og snúa með mann í baki og svo spilum við.
Á laugardag er svo æfingaleikur við KA og er mæting í hann kl.13:30. Hópurinn verður kynntur á föstudag.
Capice?
kv. Jónsi
»
25.10.2010 20:13:58 / Foreldraráð
Sælir foreldrar!
Fundur með þjálfara og Unglingaráði verður haldinn næstkomandi miðvikudagskvöld kl. 21 - 22 í Hamri. Eigum saman uppbyggjandi og upplýsandi samræður um flokkinn og starfið framundan.
Fráfarandi foreldraráð!
»
25.10.2010 10:20:47 / Jónsi
Sælar stelpur,
Ég hugsa að það sé þægilegt fyrir ykkur að fá alltaf vikuplan svona fram í tímann eins og ég gerði oft í sumar. Svo þið vitið svona ca. hvernig þetta stefnir allt saman.
Mánudagur kl.16:45 - 18:10.
Miðvikudagur kl.13:30-15:10.
Föstudagur kl.16:00 (hlaupaskór og hlý föt)
Sunnudagur kl. 10:45 æfingaleikur, ekki ákveðið hvort liðið það er. Þær sem eru ekki að spila mæta væntanlega á æfingu kl.10:00.
Svo að gefnu tilefni stelpur þá bið ég ykkur um að klæða ykkur ekki bara í stuttermaboli og stuttbuxur þegar það er svona kalt í veðri. Það er allavega alveg lágmark að vera í peysu. Þið getið þá bara frekar farið úr henni ef ykkur er orðið of heitt. Þið eruð algjörlega að bjóða veikundum eins og kvefi og hálsbólgu heim ef þið eruð svona illa klæddar í Boganum á þessum árstíma.
Annars sjáumst við bara hress í dag!
kv. Jónsi og Bojana
»
23.10.2010 17:48:41 / Jónsi
Sælar stelpur,
Á morgun er stefnan að spila æfingaleik við 2.flokk kvenna en þar sem þar er töluverð mannekla er ekki alveg ljóst hvort að af því verður. Þið eigið allar að mæta á morgun og fáið allar einhvern spiltíma það er öruggt.
Mæting er eins og áður sagði kl.10:30 - byrjum á smá töflufundi væntanlega og svo tökum við uppáhaldsupphitunina ykkar fyrir leikinn.
kv. Jónsi
»
21.10.2010 18:20:15 / Jónsi
Sælar stelpur,
Á morgun, föstudag
kl.16:00 er þrekæfing. Mæting er í Hamar og verið vel klæddar og vel skóaaðar því það eru allar líkur á að við þurfum e-ð að fara út.
Ég minni ykkur á að það er ekki svo að það sé frjáls mæting eða neitt svoleiðis á þessa æfingu, þessi æfing er JAFN mikilvæg og allar aðrar fótboltaæfingar og ég hreinlega krefst þess að það sé góð mæting á þessa æfingu

kv. Jónsi
»
17.10.2010 20:23:39 / Jónsi
Sælar stelpur,
Þið eruð aldrei lausar við prófin, ekki einu sinni í fótboltanum

. En svona að öllu gamni slepptu þá munum við taka einhver tæknipróf þessa viku. Prófin eru nú alls sex stykki þannig að það tekur nú alveg 3-4 æfingar að taka þau öll því við erum ekki að fara að eyða heillri æfingu í svona próf. Á morgun verður á dagskrá hjá okkur snúningapróf og svo hugsanlega knattrakspróf.
Á miðvikudag eru svo tækniæfingar í bland við skot.
Á fimmtudag/föstudag er þrek/styrktaræfing.
Svo á sunnudag er hugsanlega æfingaleikur.
Er ekki svo vetrarfrí um næstu helgi? Ef svo er þá væri gott að fá að vita hverjar eru á leið úr bænum?
kv. Jónsi
»
14.10.2010 10:12:56 / Jónsi
Sælar stelpur,
Hóparnir fyrir helgina eru hér að neðan. Þeir eru bara nokkuð blandaðir og er hér ekki um að ræða nein a og b-lið, ég reyndi að taka tillit til þess hvenær þið komist og hvenær ekki. Ég setti reyndar allt yngra árið saman í hóp + nokkar á eldra ári til að hafa nægan fjölda. Aðal ástæðan er sú að ég hef ekki séð yngra árið spila svo lengi og vil fá að sjá ykkur allar einn leik. EINHVERJAR SPILA Í BÁÐUM HÓPUM.
Hópur 2 (spilar við 4.kv á föstudag, mæting kl.16:30): Sólrún, Ragga, Helena, Birta Guðmunds, Guðrún, Eva, Elva, Þórdís, Sigrún Snædal, Elín, Díana, Hulda, Oddný, og María K. Kinga og Martha gætu mætt hér líka.
(Arna og Eydís þið megið líka mæta hér ef þið hafið heilsu til en látið mig þá vita fyrirfram).
Munið að 3-4 úr þessum hóp spila líka á sunnudag.
Hópur 1 (spilar við Draupni á sunnudag, mæting kl.10:15): Sunna, Rannveig, Sigrún Ösp, Laufey, Amanda, Heiða, Sigga, Sandra, Snjólaug, Kolla, Rebekka (KS), Kristín (KS), HELGA (KS). Svo bætast við hér við 3-4 sem standa sig vel á föstudeginum.
Það er mjög mikilvægt að þið látið mig vita ekki seinna en í dag hvort þið komist í leikina eða ekki. Það er alveg til í dæminu að færa ykkur á milli hópa ef þið eruð með alvöru afsökun, enda er þetta mikið til blönduð lið.
kv. Jónsi
»
13.10.2010 10:25:05 / Jónsi
Sælar dömur,
Í dag, miðvikudag er æfing kl.13:30 eins og alltaf. Á föstudag er svo æfingaleikur hjá hóp 2 við 4.flokk kvenna. Á sunnudag er æfingaleikur hjá hóp 1 við Draupni.
Þetta gerir það að verkum að þrekæfingunum þurfum við líka að skipta í tvennt. Þannig að hópur 1 er í þreki á miðvikudag og hópur2 er í þreki á sunnudag.
Ég veit svo að þetta segir ykkur ekki mikið ennþá, enn þessir hópar verða tilkynntir á æfingu í dag. Og svona svo það komi fram þá eru þessir hópar langt því frá að vera endanlegir eða slíkt, þessir hópar eru bara í gildi fram að næstu mándagsæfingu.
Þið stelpur frá Siglufirði; Dalvík og þær sem eru ekki í fótboltaskólanum getið séð hópana hér á netinu eftir æfingu í dag.
kv. Jónsi
»
10.10.2010 23:57:40 / Jónsi
Sælar stelpur!
Glæsileg æfing hjá ykkur í dag! Á morgun er svo svolítið óhefðbundin æfing því ég þarf að henda ykkur í gegnum þessi tæknipróf sem við töluðum um í dag

Mæting kl.16:45
kv. Jónsi
»
06.10.2010 15:55:21 / Jónsi
Jæja þá er þessu óurlega Cooper-testi lokið og verð ég að segja að þið komuð mun betur út i því en ég þorði að vona stelpur.
Spennandi verður að sjá hvort þær sem eiga eftir að taka það verði ekki í takt við hinar. En þið sem voruð veikar/meiddar í dag, takið prófið á miðvikudag eftir viku.
Heilt yfir stóðuð þið ykkur svo vel á æfingunni og sýnduð að þið eruð einfaldlega flottastar.
Á föstudaginn er frí en svo er æfing á sunnudag kl.10:45 (mættar þá). Munið að láta mig vita hér ekki seinna en á föstudag ef þið komist ekki.Á mánudag er tökum við svo nokkur tæknipróf en eftir það förum við svo að detta í "venjulega" æfingarútínu sem ég fræði ykkur um síðar

kv. Jónsi
»
04.10.2010 17:25:57 / Jónsi
Sælar stelpur!
Jæja þá er frí-ið sem þið voruð í svo gott sem búið því æfingarnar hefjast formlega aftur á miðvikudag.
Æfingarnar í vetur verða kl.13:30 til 15:15 á miðvikudögum (fótboltaskólinn). Á föstudögum verða þrekæfingar en þær byrja reyndar ekki næsta föstudag heldur þarnæsta.
Á sunnudögum er æfing kl.10:45 til 12:45, byrjað á upphitun og svo höfum við heilan sal í einn og hálfan tíma og endum svo á 15 mín teygjum. Á mánudögum eru æfingar kl.16:45 til 18:15, þ.e. byrjað á upphitun og svo klst á hálfum sal og svo endað á 15 mín teygjum.
Við verðum sem sagt 4 x í viku í október allavega, en svo er hugsanlegt að fimmta æfingin bætist við. Ég vek athygli á því að ég ætlast til þess að leikmenn séu mættir á æfingar 5 mín áður en auglýstur æfingatími er. Þannig að þið eigið að vera mættar og klárar í upphitun þegar hún hefst en ekki vera að reima skóna eða e-ð slíkt þegar upphitun er hafin.
Við ætlum okkur að hafa mjög gaman í vetur og sumar og lykillinn að því er að við æfum vel svo okkur líði vel og séum í góðu formi.
kv. Jónsi
»
25.09.2010 14:13:59 / Foreldraráð
Sælar stelpur!
Við vorum að fá fyrstu fjáröflun nýs 3. flokks, ásamt með 4. fl. kvk og 3. fl kk. Hún felst í því að selja merki fyrir Hjartaheill - selt á 1000 kr. og hagnaður per merki fyrir ykkur er 300 kr. Við megum selja allsstaðar á Akureyri! Fjáröflunin fer fram í dag og næstu daga! Hafið samband við Berglindi í síma: 865 4750 til að fá nánari upplýsingar.
»
23.09.2010 14:19:41 / Jónsi
Sælar stelpur,
Þá er það Grefinn kl.7 í kvöld. Ég og Steinar ætlum að koma þarna niður eftir en því miður kom það í ljós í gær að hvorugur okkar getur borðað með ykkur því við vorum báðir boðaðir á fund í Hamri kl.7 sem er mjög mikilvægur fyrir fótboltann í Þór. Ég hélt alltaf að steinar þyrfti ekki að fara þangað og þess vegna var ég ekkert að breyta þessu með Greifann en svona er þetta. Þið getið nú eflaust skemmt ykkur án okkar hehe

En já eins og ég sagði gær, mjög mikilvægt að þið mætið allar svo þið getið átt saman góða stund eftir gott sumar og vetur

kv. Jónsi
»
22.09.2010 11:13:50 / Jónsi
Sælar stelpur,
Þá er það orðið staðfest að 3.flokkur kvenna hittist í hinnsta sinn (vá dramatíkst

) á Greifanum kl.19:00 á fimmtudagskvöld.
Hlaðborðið kostar 1400 krónur og eru Pizzur og Gosglas innifalið í því

Nú treysti ég á að ALLAR sem æfðu í flokknum á síðasta tímabili láti sjá sig, og ég tek það fram að Kristín, Gyða, Móna og þið allar sem komust minna á æfingar, þið eruð að sjálfsögðu velkomnar!
Annars minni ég bara stelpur fæddar '95 á fótboltaskólann í dag.
kv. Jónsi
»
Síður:
1 2 3 ...
61